Skyndilega heltók mig einhver dagbókarbloggþörf. Veit ekki hversu langlíft þetta blogg verður en það kemur allt saman í ljós.
Snúllinn minn liggur sofandi inni í rúmi. Hann er lasinn í fyrsta sinn á ævi sinni (hefur einu sinni áður fengið kvef). Hann var með hita og voðalega slappur og lítill í sér í gær en er aðeins hressari í dag. Það sker í litla mömmuhjartað að hlusta á kútinn hósta inni í rúmi. Vorkenni honum svo aaagalega mikið.
Annars sit ég bara og drekk kaffi og borða suðusúkkulaði og seríós, furðuleg en góð blanda þegar maður er með sætindakreivíng. Maður verður að setja einn mola af súkkulaði upp í sig og svo lúkufylli af seríósi og tyggja saman... mmmm ;). Er á tískubloggarúntinum mínum... og þetta er uppáhalds tískubloggið mitt! Voðalega smart finnsk stelpa sem á svo ofboðslega mikið af fallegum fötum.
Monday, September 22, 2008
Subscribe to:
Posts (Atom)